..Okey nú
ætla ég að segja frá Versló..
Fór í Egilsstaði og
byrjaði að hressa mig og hafa mig til þar, fór svo á Norðfjörð með
Eini. Þar voru allir helvíti hressir og nettir, lenti í smá svona
fjölskylduhitting hjá Birki..haha
. Síðan var maður eiginlega
bara út um allt, kíkti aðeins á ball og allstaðar þar í kring,
endaði svo á barnum með Guðna og Hjördísi held ég, allavegna ég var
komin í tjaldið hennar Sædísar svona klukkan 06:00 og alveg
steinsofnaði. Vaknaði um morguninn að drepas í hnjánum, útaf því að
tjaldið var í halla og maður rann svo asnalega niður..hehe gáfulegt
ha
en já var svo bara eithvað að hangsa heima hjá Eyþóri ásamt
Sædísi og Helgu. Fór svo í Blómstuvelli og fékk að fara í
yndælis sturtu þar og stoppaði þar í smá stund. Svo eitthvað um 6
leitið fór maður að hressa sig við fyrir kveldið og svo bara ball
með Buff og Matta í Papar, gott ball gott ball, margt í gangi,
allir hressir og svo endaði ég á Blómsturvöllum einhverntíman um
nótta, man ekki hvenær. Betra að sofa í rúmi heldur en í tjaldi sem
er í halla..hah
Allavega fljótlega eftir það þá fór ég uppá
Héraðið með Sædísi. En um kveldið var ég driver fyrir Elsu siss,
skelltum okkur á Todmobile á Norðfirði, fínt ball nema þau hefðu
mátt taka fleiri fjörugri smelli. Haha Davíð og Sindri voru alveg
klárlega með dansinn..nettir bræður en já svo komum við heim
eitthvað um 6 leitið held ég. Það var eki mikið sofið þessa helgi
get ég nú sagt ykkur en ég meina, hver sefur mikið um
Versló??
Mánudagurinn var bara
frekar rólegur, fór svona eiginlega mest í svefn en um kveldiðvið
bjuggum við systur til Flirtini
og höfðum gaman, góður
drykkur
Vinnuvikan var frekar
létt og bara svona róleg, mála einhver skilti og svo fórum ég og
Auðna að setja net í Ánavatnið, klárlega snillingar í þessu og
veiddum alveg þó nokkra fiska sko
Rosalega Pro í
þessu
Hjörðungar hittingur um
helgina, flest allt þetta brjálaða lið hittist í kveld, það verður
snilld
Ég er sko að segja ykkur það!!
Meira blogg
seinna..
Antonía Benedikta
Eysteinsdóttir Hjarðar kveður..